Stormur Fishtex Smekkbuxur

Smekkbuxurnar eru hannaðar með góða endingu í huga. Smekkbuxurnar eru soðnar og saumaðar saman úr tveimur mismunandi PVC-efnum og veita þær 100% vatns- og vindvörn. Fishtex-efnið að framan er með tvöfaldri PVC-húð sem þolir virkilega erfiðar aðstæður. Atlantic efnið að aftan er léttara sem gerir smekkbuxurnar mjög liprar og þægilegar. Smekkbuxurnar koma með riflás á skálmum, vasa að innanverðu, sterkri teygju á mitti, vasa fyrir hnépúða, styrktum faldi og auka styrkingu á smekk úr sérstöku Lava Carbon efni sem þolir vel allan núning. Stormur Fishtex smekkbuxurnar henta vel á frystitogara, línuskip og allan veiðiskap sem er við erfiðar aðstæður. 

Vörunúmer:
SJ00402
Waterproof
Temperature 40
Oil repellant
Cold resistant
Skráðu þig inn til að panta

Upplýsingar um vöru

EFNI
Fishtex, Atlantic & Lava Carbon (pvc/pólýester)
ÞYNGD
524 gr/m2, 480 gr/m2 & 440 gr/m2
ÞYKKT
0,5 mm & 0,6 mm
ÞOLIR ALLT AÐ
-40°C
STÆRÐIR Í BOÐI
XXS-4XL
LITIR Í BOÐI
Blár/Gulur